Fúsk í fjárfestingum

Formlegir fundir, ritun fundargerð, verkferlar - hlustendum finnast þessi orð líklega ekki skemmtileg. Stjórnendur íslensku lífeyrissjóðanna virðast heldur ekki hafa verið spenntir fyrir formlegheitum ef marka má skýrslu um starfsemi sjóðanna sem kynnt var síðdegis

Nefndin var skipuð um mitt ár 2010, eftir að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis hafði verið birt. Landssamtökl lífeyrissjóða létu kanna starfsemi þrjátíu og tveggja lífeyrissjóða á árunum 2005-2009. Nefndin átti að gera úttekt á fjárfestingu sjóðanna, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi þeirra. Þegar niðurstöður nefndarinnar voru kynntar í dag, hljóta menn að stoppa fyrst við það hve mikið tapið er. fimm hundruð milljarðar er meira en öll útgjöld íslenska ríkisins. Og tapi má að miklu leyti rekja til fjárfestinga í ákveðnum viðskiptasamstæðum. Tap á fjárfestingum í Exista og tengdum aðilum - þar á meðal Kaupþingi og Bakkavöru - nam hundrað og sjötíu milljörðum króna. Tap vegna Baugs og tengdra aðila nam nær 80 milljörðum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku