Forsetinn beiti sér í lánamálum

Andrea Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtakanna.

Fulltrúar Hagsmunasamtaka heimilanna hvöttu forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson á fundi á Bessastöðum í gær, til að beita sér fyrir leiðréttingu lána og afnámi verðtryggingar. Samtökin segjast líta svo á að 25. grein stjórnarskrárinnar heimili forseta að leggja fram lagafrumvarp.

Samtökin afhentu forsetanum rúmlega 37 þúsund undirskriftir til stuðnings kröfu um leiðréttingu lána og afnám verðtryggingar. Andrea Ólafsdóttir formaður Hagsmunasamtakanna sagði í samtali við Síðdegisútvarpið að þó það væri kannski fordæmalaust að beita þessari grein þá væru aðstæður mjög óvenjulegar og við slíkar aðstæður yrði forsetinn að grípa inn í sem öryggisventill þjóðarinnar. Andrea „Við erum með blæðandi sjúkling með opna slagæð og það fossar út úr honum blóðið. Inn kemur maður á eftir með hníf í hendi og læknirinn spyr þann með hnífinn hvort það eigi ekki bara að binda laust um sárið og sjá hvort sjúklingnum blæðir út." Andrea sagði að læknirinn í þessari líkingu væri ríkisstjórnin og nú vildu Hagsmunasamtökin leita annað með þennan sjúkling heldur en til þessa læknis sem svo bregst við. Hún sagði forsetann hafa sagst vilja skoða þetta mál og ígrunda. Hann hefði greinilega spáð mikið í þetta og virtist hafa áhyggjur af þessum aðstæðum.

Sigurður Líndal sagði í spjalli við Síðdegisútvarpið að óraunhæft væri að ætlast til þess að forseti legði fram lagafrumvarp samkvæmt 25. grein stjórnarskrárinnar. Sigurður sagði frumkvæðisvaldið í því að leggja fram frumvörp yrði alltaf hjá ráðherrum. Sigurður sagði síðan annað mál hvað forsetinn gerði. Hann gæti svo sem sent þetta erindi til forsætisráðherra.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku