Fleiri öldungar vinna

Tillaga sænska forsætisráðherrans, Frederiks Reinfeldt, um að færa eftirlaunaaldurinn í Svíþjóð upp um tíu ár, úr sextíu og fimm ára upp í sjötíu og fimm, vakti athygli og hörð viðbrögð heima fyrir
Reinfeldt færði þau rök fyrir tillögunni að fólk lifði núorðið mun lengur en áður, stór hluti Svía gæti búist við því að ná því að verða eitt hundrað ára. Hann sá fyrir sér að fólk gæti skipt um störf á miðjum aldri, farið aftur í skóla og tekið námslán upp á nýtt, að vinnumarkaðurinn yrði hreyfanlegri en nú er. Þjóðfélög Evrópu eru langflest í fastari skorðum en hér á Íslandi. Við athugun á þeim tölum sem Hagstofan hefur á reiðum höndum kemur til dæmis í ljós að hérlendis vinna miklu fleiri fram yfir eftirlaunaaldurinn heldur en annars staðar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







