Fjöruverðlaunin afhent

Frábær stemmning var í Iðnó í gærmorgun þegar bókmenntaverðlaun kvenna voru afhent í sjötta sinn. Þetta eru Fjöruverðlaunin en fyrirmynd þeirra eru hin virtu bresku Orange bókaverðlaun.

Þeim var komið á fót í ljósi þess að bókmenntaverðlaun er áhrifarík leið til að vekja athygli á rithöfundum og konur eru í miklu minnihluta þeirra sem fá slík verðlaun og líka miklu færri meðal þeirra sem fjallað er um í hekmi bókmenntanna.

Í flokki fagurbókmennta fékk Oddný Eir Ævarsdóttir Fjöruverðlaunin fyrir bókina Jarðnæði, Birna Lárusdóttir verðlaunin í flokki fræðibóka, fyrir bókina Mannvist - sýnisbók um fornleifar og í flokki barna- og unglingabóka fékk Margrét Örnólfsdóttir verðlaunin fyrir bókina Með heiminn í vasanum. Áður en þetta var kunngjört söng Ljóti kór tvö lög. Þessi litli kór hefur getið sér nafn undanfarin misseri fyrir frumlegar útsetningar og söng. Kórinn söng tvö lög í Iðnó í gær en nýjasta verkefni hans er að setja saman söngdagskrá með frumfluttri tónlist Hauks Tómassonar eftir ljóðunum úr bókinni Grannmeti og átvöxtum eftir Þórarinn Eldjárn, þar sem hann yrkri handa börnum og barnalegu fólki - og við heyrðum þær fréttir að innan skamms muni kórinn syngja í breska ríkisútvarpinu, BBC. Síðdegisútvarpið var í Iðnó í gær.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku