Er ballið búið?

Fyrirhugað er að breyta hinum sögufræga Sjalla á Akureyri í hótel. Skemmtanahald hófst í Sjallanum fyrir tæpum 50 árum.

Saga Sjallans er samofin sögu Akureyrar og langflestir Akureyringar hafa einhverntímann tjúttað í Sjallanum. Hann var í mörg ár miðstöð skemmtanahalds á Akureyri og fjöldi þekktra tónlistarmanna hefur í gegnum árin leikið þar á dansleikjum. Og enn eru haldnir stórdansleikir í Sjallanum þótt markhópurinn hafi vissulega breyst.

Rætt var um stöðu íslenskrar ballmenningar í Síðdegisútvarpinu við þá Davíð Rúnar Gunnarsson skemmtanastjóra í Sjallanum og Jakob Frímann Magnússon tónlistarmann.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku