Ekki lengur þræll banka

Sigurður Þengilsson, kennari og óperusöngvari, ákvað í fyrrasumar að selja skuldsetta íbúð sína í Reykjavík og flytja út á land. Hann íhugaði að flytja til Noregs en hann og eiginkona hans eiga heilsárshús á Grenivík. Þau ákváðu að flytja þangað og una hag sínum vel.

Morgunútvarpið ræddi í vikunni við Rannveigu Halldórsdóttur en hún hvetur fólk til að líta sér nær og íhuga að flytja frekar út á land en úr landi. Rannveig býr á Kópaskeri og í þættinum tiltók hún kosti þess að búa þar.  Þetta vakti mikla athygli og fréttin var mest lesin á ruv.is í gær og í fyrradag.  Morgunútvarpið ræddi í morgun við Sigurð Þengilsson, kennara og óperusöngvara, sem ákvað að flytja ekki úr landi heldur á Grenivík. Hann hafði átt íbúð í Reykjavík, lánin höfðu hækkað gríðarlega eftir efnahagshrunið og hann og kona hans voru orðin mjög þreytt á að ná varla endum saman. ,,Það er ótrúleg tilfinning að fara úr 30 milljón króna skuld niður í þrjár og vera ekki þræll einhvers banka," sagði Sigurður í þættinum. Hann segir líka að það sé auðveldara að gæta buddunnar úti á landi, þar sé minna um freistingar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku