Egils Saga á nútímaíslensku
Fyrst birt: 18.01.2012 18:33, Síðast uppfært: 19.01.2012 14:17

Egils Saga er nýtt útvarpsleikrit á nútímaíslensku í þremur hlutum sem verður flutt í Útvarpsleikhúsinu á Rás 1 á næstu vikum. Flutningurinn hefst á sunnudaginn kemur kl. 14 og við heyrðum brot af því sem koma skal í Síðdegisútvarpinu.
Erling Jóhannesson leikstjóri var gestur Síðdegisútvarpasins. Hann sagði heilmikið sóknarfæri vera nú um víða veröld fyrir Íslendingasögurnar og væntir þess að norrænir kvikmyndagerðarmenn taki þær upp á sína arma. Velgengni Hringadróttinssögu og Game of Thrones sýni og sanni að eftirspurnin sé fyrir hendi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







