Býður sig fram til biskups
Fyrst birt: 24.01.2012 18:54, Síðast uppfært: 24.01.2012 19:17

Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti biskups Íslands og hann sat fyrir svörum í Síðdegisútvarpinu.
Kristján Valur sagðist ekki vera frambjóðandi mikilla breytinga. Kirkjan væri stórt skip sem þyrfti að koma við í hverri höfn. Hann sagði líka Þjóðkirkjuna standa á krossgötum þegar ekki væri ljóst að hvort hennar yrði getið í nýrri stjórnarskrá.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







