Baldur hlýtur dóm í Hæstarétti

Baldur Guðlaugsson
Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, var sakfelldur í Hæstarétti í dag fyrir innherjasvik og dæmdur í tveggja ára fangelsi. Dómurinn er óskilorðsbundinn. Þar með staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur.
Sýnt þykir að Baldur hafi búið yfir innherjaupplýsingum þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum í september 2008 fyrir tæpar 190 milljónir króna, þremur vikum áður en bankinn féll. Baldur hafi, með setu sinni í samráðshópi um fjármálastöðugleika, fengið upplýsingar um stöðu bankans sem hinn almenni hluthafi hafði ekki. Ólafur Börkur Þorvaldsson, hæstaréttardómari skilaði sératkvæði.
Síðdegisútvarpið ræddi við Hallgrím Indriðason, fréttamann, sem var viðstaddur uppkvaðningu dómsins og við heyrðum viðbrögð Karls Axelssonar, verjanda Baldurs.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







