Atvinnutorg fyrir 16-24 ára opnað

Atvinnutorg fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16-25 ára var opnað á föstudaginn hjá Vinnumálastofnun.

Ungt fólk í atvinnuleit fær þar aðstoð óháð hvaða rétt það hefur til atvinnuleysisbóta, en aðaláherslan er samt á þann hóp ungs fólks sem er án bótaréttar eða er um það bil að klára bótarétt. Ungt fólk mun fá tilvísun til Atvinnutorgsins í gegnum virkniráðgjafa þjónustumiðstöðvanna og ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Atvinnutorgið er staðsett í Kringlunni 1 -- á sama stað og Vinnumálastofnun og er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar, velferðarráðuneytis og Vinnumálastofnunar. Tryggvi Haraldsson, forstöðumaður torgsins, kom í Síðdegisútvarpið. Hann sagði meðal annrs frá því að Skortur væri á tækifærum fyrir ungt fólk til að öðlast starfsreynslu á vinnumarkaði. Þetta væri sá hópur atvinnuleitanda sem hefði minnsta menntun og starfsreynslu og þyrfti meiri stuðning en ella.

Atvinnutorgi er ætlað að koma til móts við þennan hóp. Á Atvinnutorgi munu ungmenni 16-25 ára fá einstaklingsmiðaða ráðgjöf og gerðar verða áætlanir með þarfir þeirra í huga. Störfin eða Starfsþjálfunin felur í sér að svið, stofnun eða fyrirtæki borgarinnar bjóða ungmennum til sín í þjálfun í einn til þrjá mánuði, tvo til fimm daga vikunnar. Starfshlutfall og verkefni fara eftir aðstæðum hverju sinni og samkomulagi við ungmenni. Tímabundin ráðning felur í sér að svið, stofnanir og fyrirtæki borgarinnar ráða ungmenni til sín í 6 mánuði í 50% -100% starf. Eingöngu er um tímabundnar stöður að ræða þar sem ungmennin öðlast starfsreynslu en fá meðmæli sem ættu að hjálpa þeim út á almennan vinnumarkað.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku