Anna Þorvalds og Daníel Bjarna

Aeriality og Birting eftir þau Önnu Þorvaldsdóttur og Daníel Bjarnason verða flutt í Ópus, mánudagskvöldið 23. janúar. Þau eru bæði tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna sem tónverk ársins í flokki sígildrar- og samtímatónlistar.
Ópus hefur í síðustu þáttum kynnt þau sjö tónverk sem tilnefnd eru sem tónverk ársins í flokki sígildrar- og samtímatónlistar. Nú verða síðstu tvö verkin kynnt, en það eru verkin Aeriality eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Birting eftir Daníel Bjarnason. Bæði hafa unnið til verðlauna í þessum flokki, Daníel með verk sitt Bow to String fyrir árið 2009 og Anna fyrir verkið Hrím í fyrra. Daníel fékk einnig verðlaun sem tónhöfundur ársins það sama ár og Anna er tilnefnd fyrir plötu sína Rhizoma núna. Bæði eru einnig tilnefnd í flokknum tónhöfundar ársins að þessu sinni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







