Áhyggjur vegna Háholts

Meðferðarheimilið Háholt

Á meðferðarheimilinu Háholti hafa menn mestar áhyggjur af árásum unglinganna á starfsmenn en strok af heimilinu hafa einnig verið tíð.

Háholt hefur undanfarna mánuði verið nokkuð í fréttum vegna tíðra stroka ungmenna þaðan og á síðasta ári var ráðist nokkrum sinnum á starfsfólkið og samkvæmt lögreglunni á Sauðárkróki er fólk á nærliggjandi bæjum orðið órólegt vegna þess. Áslaug Guðrúnardóttir fréttamaður ræddi við Halldór Hauksson, sviðstjóra meðferðar- og fóstursviðs Barnaverndarstofu í Síðdegisútvarpinu og spurði út í brotthlaup unglinganna frá Háholti, þar sem fimm ungmenni frá 15 til 18 ára dvelja. Háholt er líka afplánunarstaður fyrir ungmenni sem hafa hlotið refsidóma.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku