Áfengisdrykkja eftir leiki

Óli Stefán Flóvensson

Óli Stefán Flóvensson, fyrrverandi knattspyrnumaður segir að í þeim liðum sem hann spilaði með hafi leikmenn fengið sér í glas eftir nánast hvern einasta leik. Það hafi þótt sjálfsagt. Óli kom í Morgunútvarpið og í símanum var Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ.

Óli Stefán vakti athygli á þessu í grein á fótbolti.net í gær. Þar segir hann frá því að hann hafi átt við áfengisvanda að stríða um árabil, á meðan hann æfði og spilaði fótbolta. Hann tókst á við vandann og er edrú í dag. Óli lýsir í greininni hve sjálfsagt þótti að fá sér í glas eftir leiki og að á svokölluðum liðssamkomum hafi alltaf verið boðið uppá áfengi, hvort sem um var að ræða fundi eftir tapleiki til að rífa hópinn upp eða til fagna góðum árangri. Alltaf var áfengi haft um hönd segir Óli í greininni. En er þetta algengt í fótboltanum og öðrum hópíþróttum? Morgunútvarpið ræddi þetta við Óla og Viðar Sigurjónsson, sviðsstjóra þróunar og fræðslusviðs Íþrótta- og ólympíusambands Íslands.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku