14 ára grasafræðingur á Patró
Fyrst birt: 02.02.2012 18:42, Síðast uppfært: 02.02.2012 18:42

Narfi Hjartarson fékk áhuga á grasafræði fyrir tveimur árum og stundar plönturækt af miklum móð. Hann hefur nú þegar komið sér upp myndarlegum trjálundi en trjáræktin heillar hann einna mest.
Í Síðdegisútvarpinu var rætt við Narfa sem segist stefna á nám í grasafræði þegar hann er kominn á háskólaaldur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







