Innilokaðir vegna eldsneytisverðs

Formaður Öryrkjabandalagsins vill láta skoða hvort öryrkjar fái afslátt af opinberum gjöldum af eldsneyti. Margir þeirra séu félagslega einangraðir því þeir geti ekki notað bílinn til að komast milli staða.

Eldsneyti hefur hækkað hratt í verði síðustu misserin og nú er svo komið að einn líter af bensíni kostar rúmlega 250 krónur. Díselolían er síðan nokkrum krónum dýrari.

Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalagsins bendir á að margir öryrkjar hafi ekki aðrar leiðir til að komast á milli staða en að nýta bílinn.

Hluti þeirra hafi hinsvegar ekki lengur efni á að nota þá.

„Þetta er orðið svo dýrt að fólk kemst ekki einu sinni til þess að fá sér að borða eða í heimsóknir eða guð veit hvað - halda sér við í lífinu félagslega. Það bara lokast inni.“

Með öðrum orðum - margir öryrkjar séu orðnir félagslega einangraðir beinlínis vegna þess hversu dýrt eldsneyti sé. Hann segir að ein hugmynd til að koma til móts við þennan hóp sé í raun einföld.

„Að öryrkjar fengju bara kort, fengju þá felld niður opinber gjöld af eldsneyti, hvort sem væri af olíu eða bensíni, þegar fyllt væri á. Það myndi muna alveg gífurlega miklu.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku