Icelandair gert að greiða 80 mkr

Icelandair þarf að greiða 80 milljóna króna sekt vegna svonefndra Netsmella sem þeir buðu uppá árið 2004. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar. Með Netsmellunum undirbauð Icelandair verð keppinautar. Það var óheimilt, þar sem Icelandair hafði markaðsráðandi stöðu.
Þar með sneri Hæstiréttur að hluta til dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Héraðsdómur hafnaði kröfu Icelandair um að fella úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála þess efnis að Icelandair hafi brotið gegn ákvæðum samkeppnislaga með sölu á Netsmellum árið 2004. Héraðsdómur ákvað hins vegar að falla frá sektinni en áfrýjunarnefndin hafði lagt á 130 milljóna króna sekt.
Hæstiréttur staðfesti í gær að hluta úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Segir í dómi Hæstaréttar að Icelandair hafi gerst sekt um ólögmæta undirverðlangningu með því að selja og bjóða farmiða á tilteknu verði á flugleiðinni frá Keflavík til Kaupmannahafnar. Aftur á móti var ekki talið að fyrirtækið hefði brotið gegn ákvæðunum með sölu og boðum farmiða á flugleiðinni milli Keflavíkur og London, þar sem óverulegur munur var á farmiðaverðinu að frádregnum skatti og staðfærðum kostnaði. Icelandair var því gert að greiða 80.000.000 króna í sekt í stað 130 milljóna eins og úrskurður áfrýjunarnefndarinnar hljóðaði uppá.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







