ÍBV og Valur mætast í úrslitum

Lið ÍBV fagnaði vel í leikslok
Það verða ÍBV og Valur sem mætast í úrslitaleik bikarkeppni kvenna í handknattleik en liðin lögðu andstæðinga sína í undanúrslitum í kvöld.
ÍBV vann öruggan ellefu marka sigur á FH 24-13 í Vestmannaeyjum eftir að hafa verið með fimm marka forystu í hálfleik 12-7. Grigore Ggorgata var markahæst í liði ÍBV með sex mörk en Ingibjörg Pálmadóttir skoraði fjögur mörk fyrir FH.
Valur vann einnig öruggan sjö marka sigur á Stjörnunni 35-28 á heimavelli sínum á Hlíðarenda en Valskonur höfðu sex marka forystu í hálfleik 16-10. Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Þorgerður Anna Atladóttir skoruðu átta mörk fyrir Val en Rut Steinsen var atkvæðamest í liði Stjörnunnar með sjö mörk.
Úrslitaleikur ÍBV og Vals verður í Laugardalshöll laugardaginn 25. febrúar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







