ÍA semur við Jesper Jensen
Fyrst birt: 24.07.2012 16:04, Síðast uppfært: 24.07.2012 16:04

Mynd: Eva Björk Gary Martin yfirgaf ÍA á dögunum en Daninn Jesper Jensen er líklega á leiðinni í herbúðir Skagamanna.
ÍA hefur samið við danska miðjumanninn Jesper Jensen og mun að öllu óbreyttu spila með Skagamönnum í úrvalsdeild karla það sem eftir er af tímabilinu.
Jensen lék með Stjörnunni síðasta sumar og lék afar vel með liðinu þangað til að hann sleit krossbönd á miðju tímabili. Stjarnan bar víurnar aftur í leikmanninn en fram kemur á Vísi í dag að Þórður Guðjónsson hefur staðfest að leikmaðurinn sé á leik upp á Skaga og fari í læknisskoðun á fimmtudaginn. ÍA er í sjötta sæti deildarinnar með 18 stig en félagið seldi Englendingana Gary Martin og Mark Doninger á dögunum en Martin gekk í raðir KR og Doninger samdi við Stjörnuna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












