Í mótmælasvelti í 55 daga

Palestínumenn með myndir af Khader Adnan og krefjast þess að honum verði sleppt. Mynd.AFP
Erindreki Sameinuðu þjóðanna lýsti í dag yfir áhyggjum af heilsufari Palestínumanns sem er í mótmælasvelti í haldi Ísraelsmanna. Khader Adnan hefur ekki borðað neitt síðan 18. desember eða í 55 daga til að mótmæla því að vera í haldi án ákæru.
Adnan var handtekinn í Jenin á vesturbakka Jórdanar, en hafði þá verið talsmaður samtakanna Heilagt stríð. Ísraelsmenn hafa hvorku ákært hann né birt neinar sakargiftir. Samkvæmt ísraelskum herlögum er hægt að halda mönnum án ákæru í allt að sex mánuði. Fyrr í þessum mánuði komst ísraelskur herdómstóll að þeirri niðurstöðu að Adnan skyldi haldið í fjóra mánuði, þrátt fyrir að heilsu hans hefði hrakað verulega. Adnan áfrýjaði í gær niðurstöðu dómstólsins, en áfrýjun hans verður í fyrsta lagi tekin fyrir eftir helgi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







