Hyggjast stefna borginni
Fyrst birt: 08.02.2012 03:23, Síðast uppfært: 08.02.2012 04:40

Stjórn Félags leikskólakennara hyggst stefna Reykjavíkurborg ef greiðslur vegna neysluhlés verða felldar niður.
Morgunblaðið greinir frá því í dag að félagið hafi tilkynnt borgaryfirvöldum formlega um fyrirhugaða málshöfðun. Starfsmenn leikskóla í Reykjavík fengu fyrst greiðslur fyrir neysluhlé árið 2007 í tengslum við kjarabætur sem borgaryfirvöld réðust þá í. Nam sú greiðsla allt að tíu yfirvinnutímum á mánuði og miðast við að starfsmenn þurfi að snæða á sama tíma og þeir sinna leikskólabörnum. Borgin ákvað hins vegar eftir gerð kjarasamninga í fyrra að fella niður greiðslurnar en það sætta leikskólakennarar sig ekki við.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Leikskólakennarar íhuga aðgerðir
Leikskólakennarar sturlaðir af reiði





