Hvika hvergi frá sjúkrahússbyggingu

Úr þingsal.
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra segir stjórnvöld ætla að halda ótrauð áfram að undirbúa byggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Hann útilokar ekki farið verði af stað með verkefnið sem ríkisframkvæmd. Hann segir nýjan spítala þýða sparnað í rekstri uppá hátt í þrjá milljarða króna á ári.
Guðbjartur segir eitt af stóru verkefnunum nú vera byggingu nýs Landspítala og sagðist hann trúa á stuðning Alþingis og Reykjavíkurborgar. Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra sagði það vonbrigði að tafir hefðu orðið á verkefninu.
Nýmæli í þingstörfum nú er að leggja tvo daga undir fyrstu umræðu um fjárlagafrumvarpið. Þingmenn lýstu ánægju sinni með fyrirkomulagið og að fá tækifæri til að spyrja ráðherra út í einstaka liði frumvarpsins. Enn ríkir óvissa um fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar þar sem enn sé óljóst hverjar tekjur verða af sölu bankanna. Fram kom í svari Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar að ekki standi til að selja Landsbankann og sparisjóðina nema þá í undantekningartilvikum.
Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, spurði velferðarráðherra út í stöðuna á byggingu nýs Landspítala en eins og fram hefur komið í fréttum er byggingin umdeild. Álfheiður sagðist fagna hverju skrefi sem tekið sé í átt að nýjum spítala. Hún hefur orðið fyrir nokkrum vonbrigðum með það hve verkefnið hefur tafist. Hún spurði Guðbjart hver yrðu næstu skrefin á leið til nýs spítala.
Guðbjartur segir stöðuna þá að skipulagsmálum ljúki senn. Enn sé verið að skoða hvort þetta verði ríkisframkvæmd og þá þurfi að tryggja stuðning þingsins og sátt við Reykjavíkurborg. Hann er þess fullviss að nýr spítali sé skynsamleg framkvæmd sem verði til þess að sjúklingar fái betri þjónustu og starfsfólk betri aðstöðu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













