Hverjir eiga að ráða Grikklandi?
Fyrst birt: 06.02.2012 19:40, Síðast uppfært: 06.02.2012 19:40

Verða fjárráðin tekin af Grikkjum?
Leiðtogar Frakklands og Þýskalands gáfu í dag í skyn að taka þyrfti fjárráðin af Grikkjum. Öðru vísi verði ekki tryggt að þeir standi við gerða samninga. Nú er rætt um nýjan björgunarpakka fyrir Grikki, til að forðast greiðslufall sem vofir yfir um miðjan mars. Skilyrðin sem sett eru fyrir björgunarpakkanum kunna þó að vera of ströng til að grískir stjórnmálamenn geti gengið að þeim. Lágmarkslaun verða minna en hundrað þúsund krónur, segja á upp 150.000 opinberum starfsmönnum. Ástandið í Grikklandi er slæmt fyrir - meðal ungs fólks er 50% atvinnuleysi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







