Hver greiðir 47 milljarðana?

Sveinn Arason ríkisendurskoðandi.

Sveinn Arason ríkisendurskoðandi segir það orka tvímælis að 47 milljarða króna skuldbinding ríkisins vegna Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hafi ekki verið færð sem skuld í ríkisreikningi. Hann ætlar að taka málið upp við fjármálaráðuneytið.

Heildarstaða A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins var neikvæð um rúmlega 47 milljarða króna í árslok 2010. Þetta þýðir að ef núverandi sjóðfélagar héldu áfram að greiða iðgjöld til 67 ára aldurs myndi vanta 47 milljarða til að sjóðurinn gæti staðið í skilum við þá að fullu. Í skýringum með ríkisreikningi fyrir árið 2010 er gerð grein fyrir þeirri skuldbindingu sem hugsanlega fellur á ríkissjóð vegna þessa. Upphæðin er hins vegar ekki skráð sem skuld í ríkisreikningi. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem kom út í janúar er þeirri spurningu varpað fram hvort ekki hefði verið rétt að færa þessa upphæð til skuldar í ríkisreikningi. Úr því þurfi að fá skorið. En þýðir þetta einfaldlega að staða ríkissjóðs sé 47 milljörðum lakari en gefið er upp?

Sveinn Arason segir að enn hafi ekki verið rætt um það við fjármálaráðuneytið hvernig fara beri með þessa neikvæðu stöðu A-deildar Lífeyrissjóðsins. Málið verði rætt á næstu vikum og mánuðum.

Inntur eftir því hvort það sem upp á vantar séu peningar sem hið opinbera þarf að greiða að lokum svarar ríkisendurskoðandi: „Það stendur í regluverkinu að launagreiðanda ber að bæta framlag sitt til lífeyrissjóðsins til að ná jöfnuði... Launagreiðendur sem taka þátt í A-deildinni þurfa í fyllingu tímans að greiða eitthvað sem nemur þessum halla.“

Sveinn segir því að setja megi spurningamerki við þessi vinnubrögð fjármálaráðuneytisins. „Auðvitað orkar svona tvímælis úr því að við erum að setja svona niður á blað og það þarf bara að fást niðurstaða í það.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku