Hvalir með sýningu - myndskeið
Fyrst birt: 28.07.2012 12:22, Síðast uppfært: 28.07.2012 15:54

Hvalavaða sýnir nú listir sínar í sjónum við Stapann í Innri-Njarðvík, mjög nærri landi, og hefur fjöldi fólks safnast saman til að fylgjast með og hlusta á flautið í hvölunum.
Þeirra á meðal er Gunnar Örn Guðmundsson, íbúi í Njarðvík, en hann giskar á að í vöðunni séu á þriðja hundruð hvali, einungis um 10-20 metra frá landi.
„Ég er að horfa hérna á stóra torfu, hún er mjög þétt. Þeir eru hérna að lyfta sér upp úr sjónum, leika sér bara og flauta á okkur. Það eru skrítin hljóðin í þeim, þeir eru greinilega að tala saman. Þeir eru hér rétt fyrir utan bergið. Ég held að þetta séu grindarhvalir. Þetta er mjög þétt torfa, við höldum að þetta séu tvö-þrjú hundruð stykki.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














