Hreinsistöð komin við Rangá

Hreinsistöð kemur í veg fyrir að fastur úrgangur fari út í Rangá. Myndin er úr safni.
Komið hefur verið í veg fyrir að mengunarslys á borð við það sem varð í Ytri-Rangá í fyrra geti endurtekið sig. Sveitarfélagið setti nýverið upp hreinsistöð sem kostaði hátt í 30 miljónir.
Úrgangurinn út í Rangá
Það var í september í fyrra sem fréttastofa RÚV sagði frá því að mikill úrgangur úr kjúklingasláturhúsi Reykjagarðs á Hellu hefði flætt í Ytri-Rangá. Fitugildra við sláturhúsið yfirfylltist með þeim afleiðingum að úrgangurinn flæddi út í fráveitukerfið og þaðan beint út í Rangá. Veiðimenn voru afar ósáttir við málið.
„Þetta er náttúrulega bara skandall. Sveitarfélagið er að moka inn peningum af þessari á og að umgangast þessa náttúruperslu og þessa góðu laxveiðiá á þennan hátt, þetta er bara skandall," sagði Guðmundur Atli Ásgeirsson veiðileiðsögumaður í fréttum RÚV í september.
Telur fastan úrgang
Í kjölfar málsins áminnti Heilbrigðiseftirlit Suðurlands kjúklingaframleiðandann Reykjagarð. Nú er hins vegar búið að koma í veg fyrir að svona nokkuð geti endurtekið sig, því hér hefur verið sett upp hreinsistöð af fullkomnustu gerð, aðeins steinsnar frá ánni. Þetta er hreinsivirki fyrir fráveituna hérna á Hellu. Hún tekur allan fastan úrgang sem kemur í fráveituna þannig að það kemur algjörlega í veg fyrir að fastur úrgangur fari hér í ána.
„Þetta hefur nú staðið til í nokkurn tíma og það hafa verið þessi mál sem snúa að ánni og hreinlæti gagnvart henni sem urðu þess valdandi," segir Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra.
Í veg fyrir slys
Gunnsteinn segir að hreinistöðin komi algjörlega í veg fyrir að slys á borð við það sem varð í fyrra geti endurtekið sig, enda hreinsi hún allan úrgang áður en vökvanum er veitt út í ána.
„Þetta kemur í veg fyrir að fastur úrgangur fari hér út í á," segir hann og segir að framkvæmdin hafi kostað á þriðja tug milljóna króna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












