Hrafnhildur í úrslit á EM
Fyrst birt: 26.05.2012 15:40, Síðast uppfært: 26.05.2012 15:41
Flokkar: Íþróttir

Hrafnhildur Lúthersdóttir er komin í úrslit í 50 metra bringusundi á Evrópumótinu
Hrafnhildur Lúthersdóttir tryggði sér í dag sæti í úrslitum í 50 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu í Ungverjalandi. Hrafnhildur kom í mark á tímanum 31.95 sekúndur í undanúrslitum og hafnaði í 7. sæti.
Íslandsmet Hrafnhildar í greininni er 31.85 sekúndur en það setti hún í undanrásunum í morgun.
Erla Dögg Haraldsdóttir synti einnig í undanúrslitunum í dag en hún kom í mark á tímanum 32.27 sekúndur og hafnaði í 14. sæti.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













