Hótelgestir fá í skóinn

Flokkar: Innlent, Mannlíf
Mynd: Rúv


  • Prenta
  • Senda frétt

Komið hefur í ljós að íslensku jólasveinunum er ekki aðeins umhugað um börnin á Íslandi því borið hefur á því undanfarin ár að fyrir jólin, bíði gesta á nokkrum hótelum í Reykjavík glaðningur í jólasokk sem að morgni dags hangir á hurðahúni hótelherbergisins.

Í sokknum er gjarnan lítil gjöf eins og epli, mandarínur, kerti og spil. Geta má sér þess til að jólasveinar séu farnir að stunda tungumálanám á sumrum því í pokunum eru einnig upplýsingar um þá á nokkrum tungumálum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku