Hópkaup gagnrýnd

Skjáskot af heimasíðu Hópkaupa.
Verslunareigendur gagnrýna Hópkaup fyrir að halda eftir greiðslu fyrir ónotuð gjafabréf sem keypt eru í gegnum vefsíðuna. Framkvæmdastjóri Hópkaupa segir fyrirkomulagið vernda neytendur og auka gæði tilboða.
Sífellt fleiri nýta sér afsláttarvefsíður á borð við Hópkaup sem bjóða tímabundna afslætti af ýmsum vörum og þjónustu. Viðskiptin fara þannig fram að keypt er gjafabréf í gegnum vefsíðu sem síðan er framvísað á sölustað. Borið hefur á því að einhverjir kaupi gjafabréf en nýti það svo ekki.
Verslunareigendur hafa gagnrýnt Hópkaup fyrir að halda eftir greiðslu fyrir þau gjafabréf. Áður hafi þeir fengið heildarupphæð tilboðsins greitt út í einu lagi, nú sé aðeins greitt þegar varan hafi verið afgreidd til handhafa gjafabréfs.
Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri Hópkaupa, segir að borið hafi á því að verslanir í fjárhagsvanda væru að ná sér í rekstrarfé í gegnum eldra fyrirkomulag. „Þannig að þá urðum við að endurskoða allt ferlið í þessu til þess að bæta hag neytandans fyrst og fremst og til að takmarka áhættuna af þessum viðskiptum,“ segir Árni.
Árni segir áhættuna hafa falist í því að verslunin tæki peninginn og lokaði síðan versluninni. Eftir sæti neytandinn með ónýtt gjafabréf. Nýja fyrirkomulagið verndi neytendur og auki gæði þeirra vara sem í boði eru. „Við hættum að fá svolítið svona vafasama aðila inn til okkar í viðskipti. Við fórum að fá fyrirtæki sem voru heilbrigðari og eru ekki að sækja sér rekstrarfé bara fyrir næstu mánaðarmót. Tilboðin fóru að snarbatna og gagnvart neytandanum þá erum við með aurana og við getum þá endurgreitt neytendanum ef hann er óánægður,“ segir Árni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







