Hólmfríður og Katrín á reynslu
Fyrst birt: 06.02.2012 10:30, Síðast uppfært: 06.02.2012 10:30

Knattspyrnukonurnar Hólmfríður Magnúsdóttir og Katrín Ómarsdóttir spiluðu æfingaleik með norska liðinu Arna-Björnar í gær.
Þær eru báðar samningslausar eftir að bandaríska atvinnumannadeildin var blásin af á dögunum. Það má sama má segja um fjöldann allan af sterkum leikmönnum sem leita sér nú að nýju félagi eftir að ljóst varð að ekkert verður spilað í Bandaríkjunum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







