Hissa á Íslendingum

Íslenskur verktaki, sem hefur rekið byggingarfyrirtæki í Noregi í 15 ár, segir að ásókn Íslendinga í vinnu hafi aukist mikið síðustu ár. Hann segir að það komi sér á óvart hversu misjafnlega þeir standi sig.

Húsvíkingurinn Kristján Eymundsson hefur búið í Stavangri frá árinu 1995 og stofnaði byggingarfyrirtækið FaktaBygg tveimur árum seinna. Nú er hann með um 50 manns í vinnu og þar af um um 15 Íslendinga. Hann segir ásókn Íslendinga í vinnu hjá sér mikla og að hann hafi ekki geta ráðið nema brot af þeim.

En hvernig hafa Íslendingar reynst í vinnu? Kristján segir þá misjafna. Sumir séu góðir og lykilmenn hjá honum í dag. Aðrir ekki eins. Kristján segir að þetta hafi komið sér talsvert á óvart. Fólk haldi kannski að allt sé svo miklu betra alls staðar annars staðar. Allt eigi að gerast af sjálfu sér. Allt eigi að vera einfaldara og léttara. Það sé langt frá því að vera það.

Menn Kristjáns að keppast við að ljúka byggingu 16 íbúða sem eiga verða tilbúnar í maí. Og flestir eru Íslendingar.

Brynjar Þór Vigfússon, segir að menn vinni í mánuð og séu viku heima. Hann segir vel koma til greina að flytja út, en það séu margir í hópnum fjölskyldumenn, sem séu ekki tilbúnir til að flytja strax.

Þorvaldur Daði Halldórson, segir fínt að vera í Noregi. Mikil vinna og nóg að gera. Þar geti maður unnið eins og maður vilji og svo taki maður sér bara frí og slappi af. Taki einn eða tvo mánuði í vinnu og svo viku á Íslandi. Þetta geti ekki verið betra

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku