Stikilsberjasuða með kanilkremi

Girnilegur og óvenjulegur réttur sem kitlar bragðlaukana. Uppskrift úr sjötta þætti sjónvarpsþáttaraðarinnar Hið sæta sumarlíf.
Fyrir 6
6 glös
Stikilsberjasuða
150 g snyrt stikilsber (skoluð og snyrt)
30 g sykur
½ vanillustöng
1½ blað af matarlími
Hvítt kanilkrem
4 dl sýrður rjómi 38%
1 dl gerilsneyddar eggjahvítur
½ pólýnesísk vanillustöng
50 g flórsykur
um það bil ½ tsk mulinn kanill
Stökkar pistasíuflögur
50 g sykur
50 g ósaltaðir pistasíukjarnar, fínt saxaðir
50 g smjör
50 g glúkósi
25 g hveiti
+ um það bil 30 g ósaltaðir pistasíukjarnar, gróft saxaðir til skrauts!
Stikkilsberjasuða
Skerið vanillustöngina langsum og skafið vanillukornin úr með litlum hníf. Merjið kornin aðeins saman við sykurinn á borðinu með pönnukökuspaða svo að kornin aðskiljist. Sjóðið vanillusykurinn, tóma vanillustöngina, sykur og stikilsber undir loki í um það bil 10 mínútur. Leggið matarlímið í bleyti á meðan í ½ l af köldu vatni.
Takið af hitanum og kælið aðeins í 5 mínútur. Vindið matarlímið og setjið það beint upp í heita blönduna. Hrærið vel þar til matarlímið er bráðið. Setjið blönduna strax í 6 glös – vandið ykkur svo að glösin haldist hrein og fín.
Setjið glösin í ísskáp í nokkra tíma þar til blandan hefur þést (setjið hana í frystinn ef þið eruð óþolinmóð).
Hvítt kanilkrem
Skerið vanillustöngina langsum og skafið vanillukornin úr með litlum hníf. Merjið kornin með svolitlu af sykrinum á borðinu með pönnukökuhníf svo að kornin aðskiljist. Þeytið vanillusykur, flórsykur, sýrðan rjóma 38% og mulinn kanil stutta stund með handþeytara í svolítið stórri skál.
Stífþeytið eggjahvítur í annarri skál með handþeytara með hreinum þeyturunum. Hrærið nú þeyttum eggjahvítunum saman við kanilkremið í skálinni. Setjið kremið í einnota sprautupoka þegar það er jafnt og sprautið ofan á stikkilsberjasuðuna.
Stökkar pistasíulflögur
Hnoðið öll efnin saman í jafnt deig (það má gjarnan nota hrærivél með hnoðara). Rúllið deiginu í kúlu, um það bil 10 g hverja. Setjið kúlurnar á bökunarplötu með smjörpappír. Hafið gott bil á milli þeirra og bakið í mesta lagi fjórar í einu (munið að það er góð hugmynd að búa til nokkrar aukalega þar sem þær eru mjög brothættar.
Bakið kúlurnar við 160 gráður þar til þær hafa runnið út og eru ljósgullnar, um það bil 5–7 mínútur. Losið þær strax með pönnukökuspaða og látið þær kólna á borðinu. Setjið stökkar pistasíuflögurnar á glösin og stráið gróftsöxuðum pistasíukjörnum yfir í lokin.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is









