Henrik heldur forystunni

Henrik Danielsen
Henrik Danielsen heldur forystunni á æsispennandi Íslandsmóti í skák. Henrik gerði jafntefli við Þröst Þórhallsson í aðeins 16 leikjum í 6. umferð í Stúkunni í Kópavogi í dag.
Nú þegar fimm umferðum er ólokið hefur Henrik 4,5 vinning en Þröstur Þórhallsson 4 vinninga. Þrír meistarar koma í humátt á eftir með 3,5 vinning.
Stefán Kristjánsson hélt sér í toppbaráttunni með sigri á Guðmundi Kjartanssyni eins og Sigurbjörn Björnsson sem lagði Guðmund Gíslason.
Þá bar til tíðinda þegar Björn Þorfinnsson sigraði Hannes Hlífar Stefánsson, ellefufaldan Íslandsmeistara, en þetta er fyrsti sigur Björns gegn Hannesi í kappskák. Þetta var jafnframt þriðja tapskák Hannesar á mótinu og er hann nú í 7.-10. sæti. Jafntefli gerðu Bragi og Dagur eins og þeir Einar Hjalti og Davíð.
7. umferð fer fram í Stúkunni í Kópavogi á morgun.
Staðan:
1. Henrik Danielsen 4,5 vinningar
2. Þröstur Þórhallsson 4
3.-5. Stefán Kristjánsson, Bragi Þorfinnsson, Sigurbjörn Björnsson 3,5
6. Dagur Arngrímsson 3
7.-10. Davíð Kjartansson, Hannes H. Stefánsson, Guðmundur Gíslason og Björn Þorfinnsson 2,5
11.-12. Guðmundur Kjartansson og Einar Hjalti Jensson 2
Á morgun mætast:
Davíð og Björn
Þröstur og Einar Hjalti
Sigurbjörn og Henrik
Guðmundur K. og Guðmundur G.
Dagur og Stefán
Hannes og Bragi
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












