Henrik efstur eftir þrjár umferðir

Stórmeistarinn Henrik Danielsen er efstur með 2,5 vinning að lokinni þriðju umferð Íslandsmótsins í skák sem fram fór í Stúkunni á Kópavogsvelli í kvöld en Henrik vann Björn Þorfinnsson í aðeins 19 leikjum.
Þröstur Þórhallsson, Bragi Þorfinnsson og Sigurbjörn Björnsson eru í 2.-4. sæti með 2 vinninga. Fimm skákmenn hafa svo 1,5 vinning svo mótið er galopið.
Sem fyrr var afar hart barist og aðeins einni skák í umferðinni lauk með jafntefli. Óvæntustu úrslit umferðarinnar voru sigur Davíðs Kjartanssonar á stórmeistaranum Stefáni Kristjánssyni. Það var hins vegar skák Einars Hjalta Jenssonar og Guðmundar Gíslasonar sem stal senunni á skákstað en áhorfendum þótti þeir hafa unnið til skiptis. Guðmundur hafði að lokum sigur.
Fjórða umferð fer fram á morgun og hefst klukkan 16.00. Þá mætast meðal annars: Henrik-Einar Hjalti, Bragi-Sigurbjörn og Stefán-Þröstur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












