Henning Berg orðaður við landsliðið
Fyrst birt: 16.09.2011 11:12, Síðast uppfært: 16.09.2011 11:12
Norðmaðurinn Henning Berg er í dag orðaður við þjálfarastöðuna hjá íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu í norskum fjölmiðlum.
Berg, sem er 42 ára gamall, þjálfar í dag lið Lilleström í norsku úrvalsdeildinni en hann lék um árabil með stórliði Manchester United í ensku úrvalsdeildinni við góðan orðstír. Með Lilleström leika landsliðsmennirnir Björn Berg Sigurðarson og markvörðurinn Stefán Logi Magnússon. Ólafur Jóhannesson hættir með íslenska landsliðið eftir leikinn gegn Portúgal ytra í október en það er síðasta leikurinn í undankeppni Evrópumótsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







