Rífandi gangur!

Í þættinum 19. nóvember var varla þverfótað fyrir gestum. Friðrik Ómar og Jógvan, Gunni Helga, Umferðarmessa, Kjartan rakari, Sjálfviti.....

Friðrik Ómar og Jógvan Hansen komu og spjölluðu um nýju plötuna sína, Freddy
Mercury-tónleikana og útrás Frostrósa til Færeyja. Gunnar
Sigurjónsson, sóknarprestur í Digraneskirkju og Sigurður Helgason
kíktu við og sögðu okkur allt um umferðarmessu, þar sem fórnarlamba
umferðarslysa verður minnst með margvíslegum hætti. Kjartan Björnsson,
rakari frá Selfossi, kom og sagði okkur frá ,,Hátíð í bæ" og Gunni Helga,
leikstjóri og rithöfundur, kom í heimsókn og sagði okkur allt um gömlu
góðu dagana í jazz ballettinum. Svo minntist hann líka eitthvað á nýju
bókina sína.
Skemmtileg tónlist, hressandi spjall og glæný þýðing á orðinu
,,Bessevisser" í boði Valgarðs Einarssonar læknis; Sjálfviti.

 

LAGALISTI:

Grafík – Bláir fuglar

Michael Jackson og Paul McCartney – The girl is mine

Adele – Rumour Has It

Lögreglukórinn – Lög og regla

Coldplay – Speed Of Sound

KK – Lucky One

Herbertson – I Wanna Know Why

Amy Winehouse og Tony Bennett – Body And Soul

Friðrik Ómar – Stóra systir og litli brósi

Brother Grass – Blakkur

Steven Tyler – Feels So Good

Pálmi Gunnarsson – Íslenska konan

Of monsters and men – King and Lionheart

Mugison – Kletturinn

Land og synir – Hvað er títt

Ingó og Fjallabræður – Ertu ástfanginn?

Gunni og Felix – Jói útherji

Bruno Marz – Lazy Song

Lady GaGa – You And I

Páll Óskar – Partý syrpan

Lynyrd Kynyrd - Sweet Home Alabama

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Helgarvaktin

Tilkynna um bilaða upptöku