Helga Margrét náði ekki lágmarkinu

Helgu Margréti Þorsteinsdóttur tókst ekki að ná Ólympíulágmarkinu í sjöþraut á NM ungmenna um helgina


  • Prenta
  • Senda frétt

Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni, hafnaði í þriðja sæti með 5.645 stig í sjöþraut í flokki 22 ára og yngri á Norðurlandamóti ungmenna í fjölþraut sem lauk í dag í Sandnes í Noregi.

Helga Margrét, sem á bestan árangur 5.878 stig, náði ekki að tryggja sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum sem hefjast í London 27. júlí en Ólympíulágmarkið í greininni er 5.950 stig. Helga Margrét hefur frest fram til 8. júlí til þess að ná lágmarkinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku