Heimsókn Lady Gaga vekur heimsathygli

Lady Gaga í New York þegar hún kynnti nýtt ilmvatn.
Sú ákvörðun Yoko Ono, ekkju John Lennon, að veita Lady Gaga viðurkenningu úr LennonOno friðarsjóðnum í Hörpu á þriðjudag hefur vakið heimsathygli. Lady Gaga hlýtur viðurkenninguna vegna baráttu sinnar fyrir réttindum samkynhneigðra og trans-fólks.
Lady Gaga kemur til landsins á þriðjudag en ekki er vitað hversu lengi poppstjarnan verður á landinu. Erlendir fjölmiðlar hafa sýnt heimsókn söngkonunnar talsverða athygli og ef að líkum lætur verður talsvert fjölmiðlafár þegar hún lendir í Reykjavík. Eflaust verða margir ekkert síður spenntir að sjá hvort Lady Gaga mæti í fullum skrúða enda hefur klæðaburður hennar oftar en ekki vakið mikla athygli.
Lady Gaga þakkaði Ono kærlega fyrir viðurkenninguna á twitter-síðu sinni og sagði Ono og son hennar Sean hafa stutt sig með ráðum og dáðum undanfarin ár.
Vefsíður tónlistartímaritana Rolling Stone og NME fjalla nokkuð ítarlega um viðurkenningu Lady Gaga, sem og vefsíða Hello! og New York Daily News. Þar er meðal annars greint frá því að að söngkonan ætli að nota verðlaunafé sitt til að styrkja stuðningssamtök Elton John fyrir alnæmissjúka og HIV-smitaða.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












