Heiðar í viðræðum við Cardiff



  • Prenta
  • Senda frétt

Knattspyrnumaðurinn Heiðar Helguson er að öllum líkindum á förum frá enska úrvalsdeildarliðinu QPR til Cardiff í Wales sem leikur í ensku B deildinni.

Enskir fjölmiðlar fullyrða að Heiðar muni skrifa undir eins árs samning við Cardiff fyrir helgi en þangað fer hann á frjálsri sölu. Þar hittir hann fyrir Aron Einar Gunnarsson sem leikur með liðinu.

Cardiff varð í 6. sæti b-deildarinnar á síðustu leiktíð og fór í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.

Heiðar hefur undanfarin þrjú ár verið á mála hjá QPR en lék sem lánsmaður fyrsta árið hjá Watford. Cardiff verður sjötta félagið sem Heiðar leikur með á Englandi.

Hann fór frá Lillestrøm til Watford þar sem hann lék árin 1999-2005, Fulham frá 2005-2007 og Bolton 2007-2009.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku