Hefur áhyggjur af Framsóknarflokknum

Skjáskot af grein Jóns á Pressunni.
Fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins er hræddur við að flokkurinn einangrist sem stuðningsflokkur Sjálfstæðisflokksins. Hann varar við vinsældastefnu og óhagkvæmri þjóðernissstefnu í efnahags- og viðskiptamálum.
Í pistli á Pressunni skrifar Jón um stöðu Framsóknarflokksins og segir svo virðast sem skipulagshyggja í anda neo-merkantílisma sé miklu sterkari í flokknum en áður. Sú stefna þýði að ríkisvaldið hafi forystu fyrir hagkerfinu, hafi víðtækar millifærslur og heimildir til að styrkja gjaldeyrisöflun en hemja „eyðslu“ og til að móta atvinnulífið og samfélagið í slíkum anda.
Þessi skipulagshyggja sé ekki einfaldlega einangrunarstefna eða afturhald, en stutt sé yfir í óhagkvæma þjóðernisstefnu í efnahags- og viðskiptamálum, handaflspólitík, millifærslubákn og vinsældastefnu. Jón segir þetta hins vegar ekki gagnrýni á núverandi forystu flokksins, heldur viðvörun í aðdraganda kosninga. Margir dragi í efa vilja flokksforystunnar til samstarfs við vinstriflokka, en viljinn til samstöðu með Sjálfstæðisflokknum sé umfram það sem sameiginleg stjórnarandstaða feli í sér. Óttast hann þá að flokkurinn einangrist í því hlutverki?
„Ég get ekki neitað því, að ég er svolítið hræddur við það. Ég skrifaði fyrir einu og hálfu ári leiðara í Fréttablaðið um brú yfir miðjuna. Að það væri eðlilegt að Framsóknarmenn reyndu að byggja brú yfir til jafnaðarmanna og sósíalista. En þegar ég skrifaði þessa forystugrein þá fékk ég skammir opinberlega frá forystumönnum flokksins. Og ég er hræddur við að flokkurinn loki leiðum og skansi sig af í einhverju horni sem hann kemst síðan ekki úr. Ég hef vissar heimildir fyrir því að Sjálfstæðismenn séu ekkert hrifnir af þessu heldur,“ segir Jón.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














