Hefur áhyggjur af Falklandsdeilu
Fyrst birt: 10.02.2012 17:49, Síðast uppfært: 10.02.2012 19:38

Falklandseyjar. Mynd:Shutterstock
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í dag leiðtoga Argentínu og Bretlands til að gera allt til að forðast að deila landanna um Falklandseyjar stigmagnist.
Ban Ki-moon lét þessi orð falla eftir að Hector Timerman, utanríkisráðherra Argentínu, lagði fram formlega kvörtun hjá Sameinuðu þjóðunnum um að Bretar væru að hervæða Suður-Atlantshaf. Argentínumenn hafa sakað þá um ögranir og hernaðarbrölt við Falklandseyjar. Vilhjálmur Bretarprins kom til eyjanna með hersveit og í síðustu viku sendu Bretar þangað tundurspilli af nýjustu gerð. Bresk stjórnvöld segja þetta hins vegar venjubundnar aðgerðir.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







