Hefði aldrei átt að stofna SpKef

Ákvarðanir stjórnenda SpKef síðustu starfsár bankans urðu til þess hann féll og 25 milljarða reikningur fellur á ríkissjóð segir fjármálaráðherra. Þá hafi eignasafnið verið ofmetið. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að miðað við það hefði aldrei átt að stofna SpKef.
Allt bendir til þess að heildarkostnaður ríkisins vegna SpKef nemi um 25 milljörðum króna með vöxtum. Það mál yfirtók næstum allar óundirbúnar fyrirspurnir þingmanna til ráðherra á Alþingi í morgun. Bjarni Benediktsson spurði Oddnýju Harðardóttur fjármálaráðherra hvers vegna þessi staða væri uppi og hvort eignasafnið hafi verið ofmetið. Fjármálaráðherra sagði svo vera, eftir því sem eignasafnið hafi verið betur skoðað hafi slæmt ástand þess komið betur í ljós.
Oddný Harðardóttir greindi frá því að á síðustu starfsárum Sparisjóðsins í Keflavík hafi verið teknar ákvarðanir af stjórn bankans sem leiddu til falls hans.
„Þar voru útlán ótryggð og þar tóku, að því er virðist, stjórnendur ákvörðun sem leiddi síðar til falls bankans og þessa reiknings sem ríkissjóður þarf núna að greiða," sagði fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins sagði aldrei hafa átt að stofna SpKef. „Það þýðir ekki bara alltaf að hamra á því að bankinn hafi í fortíðinni verið illa rekinn því ef það var þannig, ef eignirnar voru ekki til staðar í upphafi, þá átti aldrei að stofna SpKef," sagði Bjarni.
Mönnum var heitt í hamsi á Alþingi í morgun. Guðlaugur Þór Þórðarson sagði efnahagsráðherra á flótta undan ábyrgð á málinu og því hvernig fór.
„Hæstvirtur efnahags- og viðskiptaráðherra núna, hann tekur hins vegar tvær stofnanir og heldur hjá sér og vill núna ekkert kannast við málið. En hæstvirtur ráðherra kemst ekki hjá því að hann ber ábyrgð á sínum eigin gjörðum," sagði Guðlaugur Þór Þórðarson.
Steingrímur J. Sigfússon svaraði þingmönnunum því að ekki væri til neins að reyna að koma ábyrgðinni af hruninu sjálfu.
„[Þeir] rembast nú eins og rjúpan við staurinn við að koma ábyrgðinni af þessu hruni og þessum skelfilega leiknu fjármálastofnunum af þeim sem stjórnuðu þeim, yfir á Fjármálaráðuneytið sem fékk það öfundsverða hlutskipti að vinna úr málunnum þegar allt var komið í kaldakol," sagði Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra á Alþingi í morgun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













