Hedin hættir með Álaborg

Robert Hedin hættir með Álaborg til að einbeita sér að norska landsliðinu
Robert Hedin, landsliðsþjálfari Norðmanna, hefur ákveðið að hætta að þjálfa danska félagsliðið Álaborg eftir að norska handknattleikssambandið fór fram á við hann að hann einbeitti sér að norska liðinu.
Hedin, sem er sænskur, tók við norska landsliðinu árið 2008. Norska sambandið ætlar honum stærra hlutverk við uppbyggingu norsks handknattleiks og formaður sambandsins, Karl-arne Johannessen, segir ekki forsvaranlegt að vera með landsliðsþjálfara í hlutastarfi þegar ætlunin sé að bæta stöðu norska landsliðsins með markvissum hætti. Hedin vildi halda áfram störfum hjá Álaborg, en hefur samþykkt kröfu norska sambandsins og segist tilbúinn í uppbygginguna sem þurfi til í Noregi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







