Haukar unnu Fjölni í kvöld

Úr viðureign Hauka og Fjölnis fyrr í vetur - Mynd: Eva Björk

Sextánda umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik hófst í kvöld með þremur leikjum.

Haukar unnu Fjölni 79-68 í Grafarvogi. Calvin O'Neal skoraði 20 stig og tók 7 fráköst fyrir Fjölni og Nathan Walkup var með 17 stig og 15 fráköst. Emil Barja skoraði 16 stig fyrir Hauka og tók 4 fráköst og Hayward Fain  var með 14 stig og 13 fráköst.

Þór Þorlákshöfn vann Sjörnuna 88-80 í Garðabæ. Justin Shouse skoraði 32 stig fyrir Stjörnuna og tók 4 fráköst og Renato Lindmets var með 20stig og 9 fráköst. Matthew James Hairston var atkvæðamestur fyrir Þór með 23 stig og 16 fráköst og Blagoj Janev skoraði 22 stig og tók 9 fráköst.
 
Þá vann Njarðvík góðan heimasigur á Snæfelli 88-78. Cameron Echols átti stórleik fyrir Njarðvík og skoraði 41 stig og tók 16 fráköst og Travis Holmes var með 29 stig og 4 fráköst. Quincy Hankins-Cole skoraði 18 stig og tók 13 fráköst fyrir Snæfell og Sveinn Arnar Davíðsson var með 17 stig og 4 fráköst.

Umferðinni lýkur með þremur leikjum annað kvöld. Grindavík fær Val í heimsókn, Keflavík tekur á móti KR og ÍR mætir liði Tindastóls í Breiðholtinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku