Hátíðir með mismunandi brag

Verslunarmannahelgi. Mynd úr safni.
Hátíðir með ólíkum brag verða að venju haldnar um verslunarmannahelgina. Náttúran, trúin, líkaminn og andinn eru ráðandi í fjölmörgum hátíðum sem haldnar eru víðsvegar um landið.
Flestar hefjast hátíðirnar á morgun, fimmtudag, en margir eru nú þegar lagðir af stað enda oft gott að vera tímanlega þar sem búist er við fjölmenni. Ef við byrjum á höfuðborgarsvæðinu og fikrum okkur svo hringinn þá eru hátíðarhöld á eftirfarandi stöðum: Innipúkinn verður haldinn í miðbæ Reykjavíkur, í Iðnó. Í Grindavík er því fagnað að hundrað ár eru síðan vegur var lagður til bæjarins og þar verður gönguhátíð. Unglingalandsmót UMFÍ er haldið á Selfossi og verður keppt í 14 íþróttagreinum. Á Flúðum verður keppt í traktorstorfæru og í Fljótshlíð verða tvær hátíðir: Flughátíðin verður venju samkvæmt í Múlakoti og í næsta nágrenni fer fram árlegt landsmót Hvítasunnumanna í Kirkjulækjarkoti.
Fjölskylduhátíð SÁÁ verður í Laugalandi og í Vestmannaeyjum verður Þjóðhátíð með Brekkusöng og öðrum föstum liðum. Álfar og ýmsar kynjaverur verða kynntar mannfólkinu á Álfaborgarséns á Borgarfirði eystra og Neistaflug verður á Neskaupstað. Á Akureyri er hátíðin Ein með öllu og boðið verður upp á Síldarævintýri á Siglufirði. Mýrarboltinn verður á sínum stað á Ísafirði og við lokum hringnum í Vatnaskógi en þar verða Sæludagar sem er fjölskylduhátíð á vegum KFUM og KFUK.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













