Hárlokkur Dorritar boðinn upp

Flokkar: Innlent, Mannlíf
Dorrit Moussaieff forsetafrú og Ólafur Ragnar Grímsson forseti.


  • Prenta
  • Senda frétt

Uppboð í tengslum við söfnunina Á allra vörum er nú í gangi á Rás 2 og meðal annars er hægt að bjóða í hárlokk af höfði Dorritar Moussaieff forsetafrúar. Uppboðinu lýkur í kvöld í sjónvarpsþætti söfnunarinnar.

Ragna Fossberg, förðunarmeistari RÚV, klippir lokkinn úr hári Dorritar í beinni sjónvarpsútsendingu í kvöld. Nú þegar hafa 500 þúsund krónur verið boðnar í lokkinn.

Einnig var boðin upp lopapeysa í fánalitunum og húfa í stíl í eigu Gísla Einarssonar. Hæsta boð í flíkurnar var 70 þúsund. Því uppboði er lokið.

Áhugasamir geta boðið í lokkinn með því að senda tölvupóst á netfangið 123@ruv.is eða með því að hringja í söfnunarsímann 7555000.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku