Hamar vann KR óvænt í Vesturbænum

KR-konur töpuðu fyrir liði Hamars á heimavelli sínum í Vesturbæ - Mynd: Eva Björk
Þrír leikir voru í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í dag þegar 22. umferð hófst.
Snæfell vann Val með sex stiga mun 88-82 á Hlíðarenda. Melissa Leichlitner skoraði 29 stig fyrir Val og tók 5 fráköst en Jordan Lee Murphree var með 22 stig og 9 fráköst fyrir Snæfell og Kieraah Marlow 21 stig og 10 fráköst.
Njarðvík bar sigurorð af Haukum 64-71 á Ásvöllum. Margrét Rósa Hálfdánardóttir skoraði 28 stig fyrir Hauka og tók 6 fráköst en Shanae Baker-Brice var með 21 stig og 10 fráköst fyrir Njarðvík.
Þá vann Hamar óvæntan sigur á KR 72-69 í Vesturbæ en Hamarskonur hafa verið á mikilli siglingu undanfarið. Margrét Kara Sturludóttir var atkvæðamest í liði KR með 22 stig og 13 fráköst en Katherine Virginia Graham var með 26 stig tók 12 fráköst fyrir Hamar og Samantha Murphy 22 stig og 5 fráköst.
Umferðinni lýkur á morgun þegar Fjölnir fær topplið Keflavíkur í heimsókn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







