Halldór tapaði kosningunni naumlega

Snjóbrettakappinn Halldór Helgason tapaði naumlega fyrir Kanadamanninum Louis-Felix Paradis í myndabandakeppni bandarísku X-leikanna en hægt var að kjósa um myndbönd þeirra á vef ESPN. Munurinn var mjög naumur en Paradis fékk 50.03 % atkvæða og Halldór 49.97%.

Aðeins átta bestu snjóbrettaköppum í heimi býðst að taka þátt í keppninni og er Halldór fyrsti Evrópubúinn sem fær boð um þátttöku. Halldóri hefur verið boðið að taka þátt á heimsmeistaramótinu í snjóbrettum en hann var einn af fáum snjóbrettaköppum sem var sérstaklega boðin þátttaka á mótinu sem fram fer í Ósló í næsta mánuði.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka