Halldór Jóhann tekur við Fram

Einar Jónsson er hættur með Fram-konur. Mynd: Eva Björk


  • Prenta
  • Senda frétt

Leikurinn í dag milli Vals og Fram var síðasti leikur meistaraflokks kvenna hjá Fram undir stjórn Einars Jónssonar, sem er hættur með liðið.

Einar hefur þjálfað Fram-konur frá haustinu 2007 og gert liðið tvisvar að bikarmeistara og lent í öðru sæti Íslandsmótsins fimm ár í röð. Hann verður þó áfram þjálfari karlaliðs Fram. Samvæmt heimildum RÚV hafa Framarar þegar gengið frá ráðningu eftirmanns Einars. Halldór Jóhann Sigfússon sem leikið hefur með karlaliði Fram síðustu fimm ár, tekur við sem þjálfari kvennaliðsins og leggur um leið skóna á hilluna sem leikmaður karlaliðsins. Halldór Jóhann hefur undanfarið þjálfað annan og þriðja flokk karla hjá Fram og náð góðum árangri.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku