Hagkerfið að taka við sér

Ráðstöfunartekjur munu hækka. Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.

Hagkerfið á Íslandi er að taka við sér. Hagvöxtur er að aukast, atvinnuleysi fer hægt minnkandi en verðbólgan helst áfram há. Þetta er meðal þess sem kemur fram í endurskoðaðri hagspá ASÍ, fyrir árin 2012 til 2014 sem birt var í dag.

ASÍ birti hagspá sína í október. Nú, þegar gögn síðasta árs liggja fyrir, hefur hún verið endurskoðuð. Í ljós kom að hagvöxtur árið 2011 var nokkuð meiri en búist var við eða 3,1%. Áfram er gert ráð fyrir hægfara bata með vexti landsframleiðslu á bilinu 1,4% til 2% næstu þrjú árin. Aðrar breytingar frá því í október eru þær helstar að verðbólguhorfur hafa versnað. Gengi krónunnar hefur veikst síðan í október og auknar opinberar álögur og heimsmarkaðsverð, til dæmis á olíu, hafa áhrif. Þannig er nú gert ráð fyrir að gengi krónunnar styrkist um 5% og gengisvísitala verði komin í 206 stig árið 2014. Verðbólga verður mikil í ár eða 5,1% en minnkar smám saman þegar líður á spátímann. „Verðbólguhorfurnar eru lakari en við spáðum í október. Nú sýnist okkur að það séu ekki líkur á að við náum verðbólgumarkmiðinu fyrr en á árinu 2013,“ segir Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeldar. 

Heimilin rétta úr kútnum

Hagdeildin gerir ráð fyrir því að staðan á vinnumarkaði verði áfram erfið en í lok spátímans, árið 2014, verði atvinnuleysi þó komið niður í 4,9%. Gert er ráð fyrir að ráðstöfunartekjur hækki vegna launahækkana og tímabundinna aðgerða til stuðnings skuldugum heimilum. Þegar líður á spátímann og tímabundnum aðgerðum sleppir muni mikil skuldsetning heimilanna þó hefta vöxt ráðstöfunartekna. „En það jákvæða er að það er viðsnúningur í efnahagslífinu og framundan er bjartari tími en liggur fyrir aftan okkur,“ segir Ólafur Darri.

Staða ríkis og sveitarfélaga áfram þröng

Spáin byggir á sömu forsendum og spá hagdeildar frá því í október 2011. Gert er ráð fyrir ýmsum opinberum og hálfopinberum framkvæmdum ... Vegna óvissu um framhald framkvæmda við álverið í Helguvík er ekki gert ráð fyrir þeim í þessari spá né framkvæmdum við tengd orkuver.

Fjárfestingar aukast á ný

Umskipti urðu í fjárfestingum á umliðnu ári. Eftir fjögurra ára samfeldan samdrátt í fjárfestingum jukust þær um tæp 5%. Þetta er þó nokkuð minni vöxtur en hagdeildin gerði ráð fyrir í október. Skýrist það af minni atvinnuvegafjárfestingum, sér í lagi stóriðju en einnig minni fjárfestingum á vegum hins opinbera. Spáin nú byggir á sömu forsendum og spáin frá því í október. Gert er ráð fyrir ýmsum opinberum og hálfopinberum framkvæmdum. Vegna óvissu um framhald framkvæmda við álverið í Helguvík er ekki gert ráð fyrir þeim í þessari spá né framkvæmdum við tengd orkuver.

Hægt er að nálgast hagspána hér:

(pdf)

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku