Hætt við tökurnar við Gróttu

Flokkar: Innlent
Ben Stiller missir af því stórkostlega tækifæri að koma á land við Gróttu. Mynd: Nordic Photos/AFP.


  • Prenta
  • Senda frétt

Leikstjóri myndarinnar The Secret Life of Walter Mitty hefur hætt við að taka upp hópatriði við Gróttu þar sem draumóramaðurinn Walter Mitty átti að koma siglandi að landi og lenda í hópi 100 þríþrautarmanna á leið í land. Stiller missir af því stórkostlegu tækifæri að dýfa sér í Atlantshafið.

Ben Stiller í hlutverki Walter Mittys átti að synda með þríþrautarfólkinu upp í fjöruna, ræna reiðhjóli af keppanda og hjóla til Þingvalla eins og segir á bloggsíðu Gísla Ásgeirssonar. Upphaflega áætlunin gekk út á að hafa 100 menn í blautbúningum og svipaðan fjölda af reiðhjólum í landi fyrir tökurnar. Nú hefur fengist staðfest hjá Eskimo að hætt hefur verið við að taka atriðið upp hér á landi. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku